Nemendaráð Engjaskóla
Almennar upplýsingar
Nemendaráð Engjaskóla skólaárið 2022 - 2023 er skipað nemendum af miðstigi.
Nemendaráð fundar reglulega í mánuði. Markmið nemandaráðs er að vinna að hagsmuna- og velferðarmálum nemenda. Nemendaráð kemur meðal annars að jafnréttismálum, matarmálum, húsnæði, umhverfismálum og öðru sem viðkemur málefnum nemendum skólans.
Einn fulltrúi úr nemendaráði situr í skólaráði.
Reglur um nemendaráð Engjaskóla
• Ráðið heitir Nemendaráð Engjaskóla
• Markmið nemendaráðsins er að vinna að hagsmuna- og velferðarmálum nemenda.
• Í ráðinu skulu sitja a.m.k. 8 fulltrúar. í það minnsta tveir frá hverjum árgangi
• Val á fulltrúum í ráðið fer þannig fram að skólastjórnendur kynna ráðið fyrir öllum nemendum á haustin. Áhugasamir nemendur bjóða sig fram við þá. Ef margir sækja um er boðað til kosninga innan hvers árgangs.
• Ráðið kemur saman til fundar a.m.k. tvisvar á önn.
• Þess er vænst að nemendaráðsfulltrúar séu fyrirmyndir annara nemenda og séu tilbúnir að vinna í þágu þeirra.
• Nemendaráðsfulltrúar bera upp mál til umfjöllunar á fundum ráðsins.
• Nemendaráðsfulltrúar bregðast við öllum málum sem borin eru upp.
• Nemendaráðsfulltrúar skiptast á að stjórna fundunum.
• Einn ritari er ráðinn og ritar fundargerðir.
• Verði nemendaráðsfulltrúar uppvísir af ósæmilegri hegðun á fundum eða utan þeirra geta þeir misst rétt til setu í nemendaráði
Fréttir úr starfi
Til foreldra/forráðamanna barna og unglinga í Grafarvogi og Kjalarnesi. Mánudaginn 27. mars kl. 19:45-21:00 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila með Heimili og skóla. Fundurinn er haldinn…
Nánar