Skip to content

Foreldrafélag Engjaskóla

Almennar upplýsingar

Foreldrafélag er formlegur samstarfsvettvangur forráðamanna þar sem þeim gefst kostur á að ræða skólagöngu barna og hvaðeina sem snertir uppeldi og menntun. Félagið hefur unnið að ýmsum verkefnum með skólanum, meðal annars útihátíðum og skólaslitum.

 

Aðrar upplýsingar

Foreldrafélagið nýtur ekki fastra styrkja en aflar fjár með innheimtu félagsgjalda og ýmsum öðrum fjáröflunarleiðum.

Foreldrafélag Engjaskóla starfar skv. 9. gr. laga um grunnskóla. Þar segir að við hvern grunnskóla skuli starfi foreldrafélag. Foreldrafélagið setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð. Hlutverk foreldrafélagsins er m.a. eftirfarandi:

Markmið

  • að styðja við skólastarfið
  • stuðla að velferð nemenda skólans
  • efla tengsl heimilis og skóla
  • hvetja til virkrar þátttöku forráðamanna í skólastarfi
  • hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu
  • Stjórn foreldrafélagsins gerir sér verkefnaskrá fyrir hvert ár og er hún birt á heimasíðu skólans þegar hún er tilbúin. Nöfn og netföng verða færð inn eftir aðalfund foreldrafélagsins í haust.

Handbók foreldrafélaga grunnskóla

Heimili og skóli hafa gefið út handbækur fyrir fulltrúa foreldra á öllum skólastigum. Í þeim er lýst starfi foreldrafélaga og foreldra- og skólaráða. Hér getur þú nálgast handbókina sem pdf skjal.