Skip to content

Lífshlaupið 2023

Engjaskóli tekur þátt í Lífshlaupinu 2023, átaks- og hvatningarverkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Lífshlaupið hjá nemendum stendur í tvær vikur frá 1. til 14. febrúar. Við tökum þátt í hvatningarleik fyrir grunnskóla þar sem nemendur okkar keppa við aðra skóla um það hvort þeir nái að hreyfa sig í 60 mínútur daglega eða á meðan átakið stendur yfir.
Starfsfólk skólans ætlar einnig að taka þátt í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins en einnig er hægt að taka þátt í einstaklingskeppni sem stendur yfir allt árið. Lífshlaupið hentar fyrir alla. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.lifshlaupid.is


                                            Frá afhendingu verðlauna 2022

Við í Engjaskóla hvetjum alla til þess að taka þátt.
Við viljum biðja ykkur foreldrar/forráðamenn góðir að hvetja börnin ykkar til þátttöku og taka þátt í því að þau nái þeim 60 mínútum í hreyfingu á dag samkvæmt ráðleggingum frá embætti landlæknis um hreyfingu. Helgarnar eru sérstaklega mikilvægar þegar að kemur að skrá hreyfingu nemenda til að vera með í keppninni. Allir nemendur skólans eru skráðir til leiks.
Engjaskóli hefur sigraði í sínum flokki síðustu 2 ár og stefnum við aftur á sigur í ár. Því er mikilvægt að skrá alla hreyfingu.
Eyðublað verður hjá umsjónarkennara í 1. til 4. bekk þar sem nemendur skrá sína hreyfingu daglega. Einnig er mjög gott að skrá hreyfingu nemenda í lestrarheftið
Stofnað verður „námsgrein“ í Google Classroom þar sem nemendur í 5. til 7. bekk munu skrá sína hreyfingu.
Einnig má senda tölvupóst með upplýsingum um hreyfingu á: kristin.gudmundsdottir1@rvkskolar.is

                                     Frá afhendingu verðlauna 2022

Hvað má skrá?
Alla miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu sem stunduð er yfir daginn. Til þess að fá einn dag skráðan þarf að hreyfa sig að lágmarki í 60 mínútur, fyrir 15 ára og yngri, sem skipta má upp í nokkur skipti yfir daginn, t.d. 10 – 15 mínútur í senn
Ykkur er velkomið að hafa samband við undirritaðan ef ykkur vantar frekari upplýsingar í tölvupósti á netfangið kristin.gudmundsdottir1@rvkskolar.is


                                            Frá afhendingu verðlauna 2020


Gangi ykkur vel –
Kveðja,
Fyrir hönd Heilsuteymis Engjaskóla
Kristín Guðmundsdóttir