Skíðað á skólatíma

Skíðað á skólatíma með 2.bekk er tilraunaverkefni á skóla- og frístundasviði í umsjón Miðstöðvar útivistar og útináms, Gufunesbæ. Verkefnið er samstarfsverkefni MÚÚ, Skíðasvæðanna í borginni og þeirra grunnskóla í Reykjavík sem vilja taka þátt.
Markmið verkefnisins er að:
• gefa nemendum í 2.bekk tækifæri til að prófa skíði
• fá reynslu í móttöku skólahópa á skíðasvæðin í borginni með áherslu á þjónustu við byrjendur
• fá endurgjöf frá nemendum, kennurum og foreldrum.
Okkar nemendur í 2. bekk tóku þátt í þessu flotta verkefni í vikunni og skemmtu sér allir konunglega.
Það er örugglega búið að vekja skíðabakteríuna upp krökkunum.