Appelsínugul veðurviðvörun að morgni þriðjudagsins 22. febrúar!

Appelsínugul veðurviðvörun, þriðjudaginn 22. febrúar frá klukkan 06:00 til klukkan 10:00: https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi
Leiðbeiningar frá Veðurstofu:
Miðlungs eða miklar líkur eru á veðri sem valdið getur miklum samfélagslegum áhrifum. Veðrið getur valdið tjóni og slysum og ógnar mögulega lífi og limum ef aðgát er ekki höfð. Skerðing á samgöngum, innviðum og þjónustu er tímabundin eða staðbundin. Veður sem þessi verða nokkrum sinnum á ári.
Hvernig eiga forsjáraðilar að bregðast við?
Aðgerðir forsjáraðila eru þær sömu og við gula viðvörun nema meiri líkur eru á þörf fyrir fylgd og að starfsfólk leiti liðsinnis forsjáraðila í upphafi skóladags vegna manneklu.
Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd.
Að morgni dags:
Forsjáraðilar þurfa að morgni að tryggja að starfsmaður sé í skólanum til að taka á móti börnunum þar sem einhver röskun getur orðið á skólastarfi vegna veðurs.
Tafist getur að fullmanna skólann og mega forsjáraðilar þá búast við að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Forsjáraðilar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
Í lok skóladags:
Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.