Hvatningarverðlaun SFS 2022

Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur 2022 vegna grunnskólastarfs og samstarfsverkefna.
– Viltu vekja athygli á gróskumiklu grunnskólastarfi á vegum Reykjavíkurborgar?
-Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðum samstarfsverkefnum grunnskóla við frístundastarf eða leikskóla?
-Viltu veita starfsfólki í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur viðurkenningu og hvatningu?
Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna grunnskólastarfs á vegum Reykjavíkurborgar.
Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, grunnskólar, leikskólar, frístundamiðstöðvar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, skólahljómsveitir, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjal og verðlaunagrip til eignar.
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið grunnskólastarf verða afhent á Öskudagsráðstefnunni sem haldin verður 2. mars 2022.
Eyðublað og frekari upplýsingar eru á heimasíðu skóla- og frístundasviðs,

Eyðublað og frekari upplýsingar eru á heimasíðu skóla- og frístundasviðs, www.skolarogfristund.is
Hér má líka finna eyðublað á pdf formi. og er skilafrestur tilnefninga til 17. febrúar.
Tilnefningar sendist á sfs@reykjavik.is