Skip to content

Vetrarfrí í Reykjavík

Mánudaginn 22. og þriðjudaginn 23. febrúar verður vetrarfrí í grunnskólum Reykjavíkur.
Nemendur mæta aftur í skólann samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 24. febrúar.  Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir börn og fjölskyldur í frístundamiðstöðvum og menningarstofnunum borgarinnar í vetrarfríinu og víða endurgjaldslaus fræðsla og skemmtun.

Hægt er að kynna sér allt sem í boði er fyrir börn og fullorðna á vefnum Vetrarleikir í Reykjavík – sem einnig er á ensku.

Gleðilegt vetrarfrí!