|

Netnámskerfið er ætlað fyrir nemendur og kennara. Notað er sama notendanafn og lykilorð og notað er þegar tengst er við tölvukerfi skólanna. Allir nemendur og kennarar hafa aðgengi að þessu kerfi. Helsta sem unnt er að nota kerfið í:
Vefdiskur: Alveg sama hvar þú ert þú getur alltaf vistað gögnin þín og nálgast þau aftur, hvar sem þú ert. Þú ert heima, opnar kerfið, vistar, ferð í skólann og gögnin er aðgengileg. Samskipti: Hver bekkur og hópur í skólanum er til í þessu kerfi. Kennarar og nemendur. Fyrir hvern hóp eru fjöldi samskiptatækja aðgengileg. Unnt er að nota kerfið til að taka á móti verkefnaskilum, hver hópur á sér spjallþræði, skilaboðaskjóður og margt fleira. Próf: Unnt er að nota kerfið til að halda próf í því. Þá getur kerfið gefið sjálfvirkt fyrir einstakar spurningar í mörgum tilvikum. Einnig er unnt að setja prófin upp með rauntíma endurgjöf þannig að nemandinn fái strax létt lesefni ef rangt var svarað. Námsefni: Kennari getur sett hvaða tölvutækt námsefni sem er inn á kerfið þannig að það sé aðgengilegt nemanda hvar sem er. Dæmi um efni væri, hljóðskrár, myndir, kvikmyndir, ýmis skjöl (word, excel, ppt o.s.frv.) Grænt: Kerfið getur stutt við umhverfisstefnu skólanna með því að minnka útprentanir til nemenda. Afhverju ekki að setja efnið bara inn á kerfið (um 90% nemenda í RVK hafa möguleika á að nálgast netið heima hjá sér og 90% spörun í útprentun er bara töluvert) Myndir: Verið er að setja upp rafræna myndbandaleigu í þessu kerfi þar sem nemendur og kennarar geta nálgast kvikmyndir og horft á þegar hentar. Þessar myndir eru jafnt vandaðar kennslumyndir ásamt því að opnað verður fyrir hvern skóla að setja myndir nemenda inn.
|