Kennsluforritin hans Hrafnkels
forritunum er dreift án endurgjalds
 

Forritin eru skrifuð í Multimedia Fusion Developer eða Visaual Basic nema annað sé tekið fram.
Hér má sækja skrár sem Visual Basic forrit þurfa.  Ef þú átt í vandræðum með að fá forritin til að virka gæti þetta verið lausnin: VBRun60sp5.exe

Vefforritin   eru flest skrifuð í Multimedia Fusion Developer 2 - nauðsynlegt er að leyfa uppsetningu á Vitalize til þess að þau fari í gang.       
Lestrarleikur 2  -  skjámynd
Tölvuleikur sem æfir lestur og stafsetningu.  Orð birtist vinstra megin á skjánum.  Þú átt síðan að ná öllum stöfunum með því að slá þá með því að ýta á þ.  Hetjunni er stjórnað með örvatökkum,  shift(hoppar) og þ.  Hægt er að velja þrjú orðasöfn með um 800 orðum. leikurinn er talsettur þ.e.a.s. þegar stafur er valinn er heiti hnas sagt.
Leikurinn er skrifað í Multimedia Fusion Developer 2.0 (
www.clickteam.com).
Hér er hægt að sækja útgáfu sem þarf ekki nettengingu .

Stúfur 3 - skjámynd
Fyrst þarf að reikna dæmin með því að láta Stúf hoppa á rétta tölu. Ef dæmi er reiknað rétt breytast tölurnar í jólapakka. Þegar ekkert dæmi er eftir þarf að ná jólapökkunum. Þegar öllu pökkum hefur verið náð kemst Stúfur í næsta borð (borðin í leiknum eru 26). Stúfur verður að passa sig á óvinunum - mörgæsir, kerti og fleira þær taka af honum eina húfu. Ef stúfur missir allar húfurnar er leikurinn búinn. Ef Stúfur hefur færri en fimm húfur fær hann aukahúfu með því að hoppa á bláa gimsteininn. A - byrja aftur í borði H - hætta Stúf er stjórnað með örvatökkum -Shift til að hoppa. . .
Samlagning - skjámynd
Prufuútgáfa af forriti svipuðu sniði og Margföldunarleik.  Skotflauginni er stjórnað með örvatökkunum en skotum hleypt af með „Þ“-hnappnum. Að leik loknum birtist tafla yfir þá sem flest stig hafa fengið í leiknum, nái nemandi inn á þann lista getur hann skráð sig þar.
Margföldun - skjámynd
Einfaldur en skemmtilegur tölvuleikur sem þjálfar margföldun talna frá 2 til 9. Í byrjun er hægt að velja töflu/r með því að smella á 2 - 9. Ef engin tafla er valin er keppt Í öllum. Dæmi birtist neðst á skjánum og skotið er á rétt svar. Við hvert rangt svar eykst hraðinn. Skotflauginni er stjórnað með örvatökkunum en skotum hleypt af með „shift“-hnappnum. Að leik loknum birtist tafla yfir þá sem flest stig hafa fengið í leiknum, nái nemandi inn á þann lista getur hann skráð sig þar.
Reikningur - skjámynd
Einfalt reikningsforrit. Leikurinn er skrifað í Multimedia Fusion Developer 2.0 (www.clickteam.com).

 
Stærðfræðileikur - skjámynd
Svipaður leikur og lestrarleikurinn. Hetjunni er stjórnað með örvatökkum og shift(hoppar).
Leikurinn er skrifað í Multimedia Fusion Developer 2.0 (www.clickteam.com).
 
Lestrarleikur - skjámynd
Tölvuleikur sem æfir lestur og stafsetningu.  Orð birtist vinstra megin á skjánum.  Þú átt síðan að ná öllum stöfunum með því að hoppa á þá.  Hetjunni er stjórnað með örvatökkum og shift(hoppar).  Í leiknum eru nærri öll orð ú bókaflokkunum Listin að lesa og skrifa.
Leikurinn er skrifað í Multimedia Fusion Developer 2.0 (www.clickteam.com).
 
Reiknum saman - skjámynd
Einfalt forrit til þess að æfa samlagningu.  Forritið er skrifað í Multimedia Fusion 2.0 (www.clickteam.com).

Sækja forrit: Reiknum saman
Keli í Egyptalandi - skjámynd
Einfaldur tölvuleikur fyrir PC tölvur.  Tölvan þarf hljóðkort og nýlega útgáfu af DirectX

Sækja forrit: KeliEgyptaland
Keli í Jólalandi - skjámynd
Einfaldur tölvuleikur fyrir PC tölvur.  Tölvan þarf hljóðkort og nýlega útgáfu af DirectX.

 
Hve margir?
Einfalt vefforrit til þess að æfa talnagildi.  Forritið er skrifað í Multimedia Fusion 1.5 (www.clickteam.com).
Frádráttur
Einfalt vefforrit til þess að æfa frádrátt.  Forritið er skrifað í Multimedia Fusion 1.5 (www.clickteam.com).
Stúfur 2 - skjámynd
Samstæðuleikur með jólamyndum.  leikurinn hefur tvö þyngdarstig.

 

 

Muggur - skjámynd
Litabók með tæplega 200 myndum.  Auðvelt er að finnamyndir á netinu.  Gott er að nota forritið IrfanView tilþess að breyta mynduum í tvegggja lita myndir (gagnastvel ef myndir hafa verið skannaðar úr litabókum). 

Sækja forrit: Muggur
 
Stafarugl - skjámynd
Stafarugl er forrit til þess að auka orðaforða ogþjálfa  stafsetningu.  Forritið er mjög einfalt í notkun. þú sækir orðalista og æfir þig að skrifa hann.  Með forritinu má einnig búa til nýja orðalista.
Forritið kemur bæði í vefútgáfu og útgáfu fyrir stakar tölvur. Þetta forrit  er einkum hugsað fyrir dönskukennslu.  Nánari upplýsingar um forritið eru hér.
Sækja forrit fyrir útstöð: Stafarugl
Sækja forrit (allar skrár í forritsmöppu t.d. ocx og dll) : Stafarugl
Þetta forrit er nú komið í vefútgáfu!

 
Jólalitabók - skjámynd
Litabók með tæplega 200 myndum.  Auðvelt er að finnamyndir á netinu.  Gott er að nota forritið IrfanView tilþess að breyta mynduum í tvegggja lita myndir (gagnastvel ef myndir hafa verið skannaðar úr litabókum). 
Í þessari útgáfu eru nokkrar villur lagaðar t.d. prentaravalmyndin.



 

 
Glókollur 3 - skjámynd
Þetta er 3 útgáfa mín af Glókolli.  Ég hef endurskrifað forritið og prufuútgáfu af því má sækja hér.  
Sækja forrit: glokollur3
Þetta forrit er nú komið í vefútgáfu!

Glókollur 2 - skjámynd
Þetta er 2 útgáfa mín af Glókolli.  Það er langt síðanég gerði þessa útgáfu.  Hún gæti gagnast einhverjum með gamla tölvu.  Skjá er best að stilla í 256 liti.  Ég á ekki lengur þuluna af forritinu þess vegna er einungis hægt að velja töflur 0 - 5.
Sækja forrit: glokollur2
Dæmabrunur Grey Olltwits - skjámynd
Hugmyndin er forrit eftir  Grey Olltwit.  Ég endurskrifaði forritið í Visual Basic með samþykki hans.  Forritið þjálfar samlagningu t.d. að geyma.  Lokaútgáfu af því má sækja hér.
Sækja forrit: samUPP
Þetta forrit er nú komið í vefútgáfu!

 

Dæmabrunur Grey Olltwits - skjámynd
Hugmyndin er forrit eftir  Grey Olltwit.  Ég endurskrifaði forritið í Visual Basic með samþykki hans.  Forritið þjálfar frádrátt t.d. að taka til láns.  Lokaútgáfu af því má sækja hér.
Sækja forrit: fradUpp
Þetta forrit er nú komið í vefútgáfu!

 

Teiknigrind - skjámynd
Byggt á forriti sem ég átti einu sinni fyrir Atari ST tölvuna mína.  Hægt er að velja 16  mismunandi munstur til að lita.  Munstrin eru valin með því að smella á örvarnar.  Hægt er að  geyma myndir og sækja.  Best er að að prenta 
myndirnar með IrfanView.

Sækja forrit: TeikniUpp
 
 
Landafræði - skjámynd
Ef smellt er á kortið litast landið og nafn þess og fáni birtist.  Einnig er hægt að smella á Byrja og þá velur tölvan lönd af handahófi sem þú átt að finna.  Ef smellt er á prenta próf prentast vinnublað.
Sækja forrit:  LandaUpp
Sækja nýja EXE skrá sem lagar eina villu.

 

Myndarugl - skjámynd
Svipað og næsta forrit með fleiri möguleikum.
Sækja forrit:  MyndaUpp
Sækja nýja EXE skrá sem lagar eina villu.
Rugla - skjámynd
Raðaðu myndunum rétt. 
Sækja forrit:  RuglaUpp
Peningar - skjámynd
Forrit þetta kennir börnum um verðgildi peninga! Skráin sem Peningar.Exe verður að hafa í sinni möppu er cncs232.dll. Stutt lýsing fylgirforritinu. Forritið gengur á neti en ég mæli ekki með því. Það er hægvirkt hjá mér. Forritað í Multimedia Fusion (www.clickteam.com)
Sækja forrit: Peningar

 

Samstæður - skjámynd
Mjög einfalt samstæðuspil. Ég þýddi og breytti þessu forriti.
Sækja forrit: Samstæður

 

Veiki hlekkurinn - skjámynd
Þeir sem hafa fylgst með BBC Prime hafa kannski séð Þáttinn The Weakest Link. Þetta er tilraunaútgáfa af svipuðu forriti. Þegar leik er lokið er hægt að prenta verðlaunaskjal. Forritinu fylgja um 500 spurningar.  Margar þeirra tengjast námsefni í náttúrufræði fyrir samræmdu prófin. Mjög auðvelt er að gera spurningar í Notepad.
Sækja forrit: VhUpp.Exe
Sækja uppfærslu á EXE skrá lagar nokkrar villur.
Sækja spurn. úr Sögu fornaldar kennd í 3. bekk MR.
Sækja spurn. úr Samband við miðaldir kennd í 4. bekk MR.

Þrjótur - skjámynd
Forrit sem býr til æfingar fyrir Ævar 2. Nú er hægt að sækja forritið hér. Ég mun ekki eiga meira við það. Forritið er tilbúið  og virkar bara nokkuð vel.
Sækja forrit:
Þrjótur

 

Anna og Atli - skjámynd
Lestrarbók fyrir byrjendur.
Sækja forrit: AnnaUpp.Exe
Talnaspil - skjámynd
Talnaspil einfalt stærðfræðiforrit sem ég skrifaði fyrir nemendur mína í 1.-H.
Sækja forrit: TalnaUpp.Exe
Feluleikur í hnitakerfinu - skjámynd
Kynning á hnitakerfinu - stutt lýsing fylgir
Sækja forrit: FeluUpp.Exe
Engjaskóli - skjámynd
Þetta forrit hef ég verið að skrifa með hléum í þrjú ár. Þetta er stærðfræðiforrit sem þjálfar allar helstu reikningsaðgerðir.
Hljóðskrárnar eru ófullkomnar enda tekið upp með litlum hljóðnema á heimilistölvu. Auðvelt er að fá betri skrár"lánaðar" úr forritum frá Námsgagnastofnun.

Sækja forrit : Fyrir net
Sækja forrit :
Fyrir útstöð

 

Orðaspil - skjámynd
Forrit sem ég skrifaði fyrir nemendur mína í 1.-H. 
Sækja forrit : Orðaspil
Sækja forrit : Orðaspil.TXT
Orðaskak - skjámynd
Forrit til tungumálakennslu - styrkt af Kennarasambandi Íslands. Ný útgáfa, nú ætti forritið að ganga á neti. Ég hef einnig prófað forritið með Windows XP stýrikerfi.  Til þess að opna gagnagrunninn er leyniorðið Hrafnkell notað.  Vegna þess að Orðaskak er skrifað með Windows 95 gagnagrunn í huga verður sækja MDAC2.7 Service Pack 1 ef forritið er notað á nýrra stýrikerfi.
Sækja forrit: Orðaskak

 

Litla litabókin - skjámynd
Forritið var styrkt af Kennarasambandi Íslands.   Forritið gengur best ef skjárinn er stilltur á 256 liti eða minna. Annars vill liturinn flæðamilli svæða.
Sækja forrit: litabók. 
Myndir til þess að lita : myndir.  
Fleiri myndir til þess að lita : myndir2.

 

Reikningskappakstur - skjámynd
Styrkt af Kennarasambandi Íslands.   Þjálfunarforrit í margföldun.   Ný útgáfa væntanleg fljótlega.
Sækja forrit: Reikningskappakstur
 
Margföldunarmeistarinn - skjámynd
Prentar töflur, dæmi og próf. Fyrir PC tölvur með Windows '95, '98, 2000 eða XP stýrikerfi. Hægt að skipta um myndir og breyta texta. 
Vinsamlegast sendið ábendingar og lýsingar á villum til
hrafnkellg@engjaskoli.is.
Sækja forrit: Margföldunarmeistarinn

 

Alvís útgáfa 1,0 - skjámynd
Spurningaforrit fyrir PC tölvur.   Forritinu fylgir Ritþór til þess að búa til spurningar.  Hægt er að nota myndir með spurningunum. 
Ég er að prufa forritið á nemendum mínum.    Vinsamlegast sendið ábendingar og lýsingar
á villum til
hrafnkellg@engjaskoli.is. Forritið notar MSAgent til áhersluauka.   Ég hef útbúið nokkrar spurningaskrár fyrir forritið.  Þeir sem nota forritið gera það ekki á mína ábyrgð!!
Sækja forrit: alvisforrit.zip
Sækja spurningar: spurningar.zip
Sækja leiðbeiningar: leidb.zip

 

Jóakim aðalönd 1,06 - skjámynd
Forrit til þess að prenta kennslupeninga.  Skrifað í VisualBasic 6,0 myndirnar fengnar af netinu. Nú mun ég ekki eiga meira við forritið.  ATH. hægt er að breyta x og y hnitum.
Sækja forrit: joakim103.zip

Í vinnslu

 

Vinnubók með Við lesum A - skjámynd

Námundun - 

Ég er að dunda mér við að skrifa þetta
forrit.

Kennsluforrit í deilingu 

Ég kenni 4. bekk eftir áramót byrjum við að æfa
deilingu.  Þá hyggst ég nota þetta forrit.

Orðabanki - heimasíða



 

 



free hit counter